143. löggjafarþing — 100. fundur, 29. apr. 2014.
1000. þingskjalið.
Athygli þingforseta hefur verið vakin á því að yfirstandandi þingfundur er á margan hátt sögulegur. Þetta er 100. fundurinn á 143. löggjafarþingi. Í dag var útbýtt þúsundasta skjalinu á þessu þingi og kannski er það tímanna tákn og örugglega til marks um gráglettni örlaganna að þetta skjal var svar við fyrirspurn um aðlögun að Evrópusambandinu. [Hlátur í þingsal.]