131. löggjafarþing — 101. fundur, 1. apr. 2005.
Athugasemd.
[10:35]
Halldór Blöndal (S):
Herra forseti. Ég vil að fram komi að það er rétt hjá hv. þingmanni að hún sendi mér tölvupóst seint í gærkvöldi, þ.e. hún sagði mér það, ég skoða ekki reglulega tölvupóst, en mér barst beiðnin í hendur í morgun. En gærkvöldinu eyddi ég í góðum félagsskap forustumanna Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.