ákvörðun nr. 59/2021 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn o.fl.
Frú forseti: Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn, nr. 145/2022 og nr. 329/2022 um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, nr. 333/2022 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn og nr. 337/2022 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
1. Ákvörðun nr. 59/2021 sem fellir inn í samninginn tilskipun 2016/2102 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki.
2. Ákvörðun nr. 145/2022 sem fellir inn í samninginn tilskipun 2019/879 um breytingu á tilskipun 2014/59/EB að því er varðar tapþol og endurfjármögnunargetu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og tilskipun 98/26/EB.
3. Ákvörðun nr. 329/2022 sem fellir inn í samninginn annars vegar reglugerð 2021/2259 um breytingu á reglugerð nr. 1286/2014 að því er varðar framlengingu á umbreytingarfyrirkomulagi fyrir rekstrarfélög, fjárfestingarfélög og aðila sem veita ráðgjöf um eða selja hlutdeildarskírteini verðbréfasjóða og sjóða sem ekki eru verðbréfasjóðir, og hins vegar tilskipun 2021/22.61 um breytingu á tilskipun 2009/65/EB að því er varðar notkun rekstrarfélaga verðbréfasjóða á lykilupplýsingaskjölum.
4. Ákvörðun nr. 333/2022 sem fellir inn í samninginn reglugerð 2018/1724 um að koma á sameiginlegu stafrænni gátt til að veita aðgang að upplýsingum, málsmeðferðarreglum og aðstoð og þjónustu til lausnar á vandamálum og um breytingu á reglugerð nr. 1024/2012.
5. Ákvörðun nr. 337/2022 sem fellir inn í samninginn tilskipun 2018/1808 frá 14. nóvember 2018 um breytingu á tilskipun 2010/13/ESB um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu (tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu) í ljósi breytinga á markaðsaðstæðum.
Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund eins og kemur fram í nefndaráliti sem liggur frammi.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Að framansögðu virtu leggur utanríkismálanefnd til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.
— Ég er að ná andanum eftir þennan mikla sprett hér yfir Austurvöll og ég hef lokið máli mínu, frú forseti.