Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

tónlistarstefna fyrir árin 2023--2030.

689. mál
[16:20]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir hönd allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um tónlistarstefnu fyrir árin 2023–2030.

Með tillögunni er menningar- og viðskiptaráðherra falið að vinna að framkvæmd tónlistarstefnu sem hefur það að markmiði að styðja við tónlist sem listgrein, tónlistarfólk og aðra sem starfa við tónlist með jöfnu aðgengi að tónlist og tónlistarmenntun. Tónlist er mikilvægur hluti af menningu landsins þar sem hún er bæði atvinnuskapandi og mikilvæg útflutningsgrein. Stórt skref verður stigið með stofnun tónlistarmiðstöðvar sem hefur það hlutverk að veita greininni aukna kjölfestu og trúverðugleika og liðka fyrir starfsemi íslensks tónlistarfólks innan lands sem utan.

Stefnan samanstendur af þremur megináhersluatriðum, sem hvert um sig hefur tiltekin markmið, og aðgerðir til að ná þeim áherslum. Fyrsta áhersluatriðið fjallar um tónlistarmenningu og tónlistarmenntun og snýr að aðstöðu, tónlistararfleifð og varðveislu menningarverðmæta á sviði tónlistar og tónlistarmenntunar. Annað megináhersluatriði stefnunnar fjallar um tónlist sem atvinnugrein og snýr m.a. að því að hér á landi verði sterkur og framsækinn tónlistariðnaður og að tónlist verði fullgild og eftirsóknarverð atvinnugrein. Þriðja og síðasta megináhersluatriðið fjallar um útflutning á tónlist og snýr annars vegar að auknum útflutningstekjum af tónlist og hins vegar að sjálfbærni og umhverfisvitund.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Nefndin fagnar fram kominni tillögu til þingsályktunar um tónlistarstefnu og leggur áherslu á að hún nái fram að ganga. Umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir gagnvart efni stefnunnar og fagna því að unnið sé að heildarstefnu í málefnum tónlistar á Íslandi. Benda þeir sérstaklega á mikilvægi tónlistar í íslenskri menningu sem nefndin tekur heils hugar undir.

Nefndin leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar rekstrarumhverfi og lífsafkomu tónlistarfólks. Nefndin bendir á að tillagan miðast að meginstefnu til við tónlistariðnaðinn sjálfan sem er mikilvægt markmið hennar. Engu að síður telur nefndin þörf á að fjalla um rekstrarumhverfi og lífsafkomu tónlistarfólks í stefnunni með það að markmiði að stefna að bættri afkomu þess. Slíkt markmið eflir allt tónlistarlíf og fellur því vel að stefnunni sjálfri. Nefndin leggur til að við markmið 2.2. bætist nýr liður sem fjallar um þetta efni.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar aðgengi, jafnrétti og inngildingu. Nokkrir umsagnaraðilar bentu sérstaklega á mikilvægi þess að aðgengi, jafnrétti og inngilding verði höfð að leiðarljósi þegar settar eru stefnur og reglur á sviði tónlistar. Landssamtökin Þroskahjálp benda á mikilvægi þess að við alla þá vinnu verði fullt tillit tekið til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Ísland fullgilti árið 2016 og að fullt samráð verði haft við fatlað fólk. Nefndin tekur undir þessar ábendingar og leggur sérstaka áherslu á að fatlað fólk verði ávallt haft til samráðs við allar ákvarðanir stjórnvalda sem varða hagsmuni þess.

Þá benda samtökin á mikilvægi þess að við endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskóla, samanber markmið 1.3., verði tekið tillit til jafnréttis og inngildingar og að sérstaklega verði hugað að stöðu tónlistarskóla sem kenna fötluðu fólki, fjármögnun þeirra og kröfum um námsframvindu. Í umsögn Tónstofu Valgerðar er lögð áhersla á að jafnrétti og inngilding verði sett fram þannig að virki í framkvæmd og að taka þurfi tillit til einstaklinga með sérþarfir. Tónstofan veitir nemendum sem vegna fötlunar eða sjúkdóma þurfa sérstakan stuðning forgang að tónlistarkennslu. Nefndin tekur undir mikilvægi þess að einstaklingar með sérþarfir hafi jafnt aðgengi að tónlistarkennslu. Nefndin bendir á að leiðarstef tónlistarstefnunnar séu aðgengi, inngilding og jafnrétti og leggur áherslu á að þau leiðarstef verði höfð að leiðarljósi við innleiðingu stefnunnar. Til að árétta þetta mikilvæga leiðarstef leggur nefndin til að við bætist nýr liður við megináherslu 1, um tónlistarmenningu og -menntun, um stuðning við verkefni sem tengjast aðgengi fatlaðs fólks að tónlistariðkun svo það fái að njóta og þróa tónlistarhæfileika sína.

Þá er í þriðja lagi lögð til breyting er varðar útflutning á íslenskri tónlist. Í megináherslu 3 í stefnunni er fjallað um útflutning á íslenskri tónlist. Í lið 3.1.3. er lagt til að skoðað verði hvernig virkja megi enn frekar samstarf við sendiskrifstofur Íslands erlendis í útflutningi og kynningu á íslenskri tónlist og tónlistarfólki. Reykjavíkurborg benti í umsögn sinni og fyrir nefndinni á að sendiskrifstofur hafi mismunandi burði til að taka við slíkum verkefnum. Leggur Reykjavíkurborg því til að við liðinn bætist að sendiskrifstofurnar verði sérstaklega skoðaðir með tilliti til þess hvort þær hafi burði til að taka við þessum verkefnum. Nefndin tekur undir þessar ábendingar og leggur til breytingu þess efnis.

Þá eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í nefndarálitinu.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Halldór Auðar Svansson og Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Bergþór Ólason, Jódís Skúladóttir og Sigurjón Þórðarson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Sigmar Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi, er samþykkur álitinu.