149. löggjafarþing — 102. fundur, 13. maí 2019.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa tvö bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1320, um fæðingar ósjúkratryggðra kvenna, frá Halldóru Mogensen, og á þskj. 1323, um húsaleigukostnað heilsugæslustöðva, frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur.