131. löggjafarþing — 102. fundur, 4. apr. 2005.
Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
387. mál
[18:36]
Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):
Frú forseti. Það kom fram í máli hæstv. sjávarútvegsráðherra að eitthvað í orðfari mínu gengi fram af honum. Ég óska eftir því að hann geri grein fyrir því hvað það var, því að mér er í rauninni alveg óskiljanlegt hvað það ætti mögulega að vera.