144. löggjafarþing — 103. fundur, 11. maí 2015.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 1. þm. Reykv. n., Illugi Gunnarsson, geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi fyrsti varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Ingibjörg Óðinsdóttir. Ingibjörg Óðinsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.