150. löggjafarþing — 103. fundur, 13. maí 2020.
ávana- og fíkniefni.
328. mál
Virðulegi forseti. Það er alveg greinilegt að mér getur orðið misdægurt í þinginu. Það er alveg ljóst. En klárlega var ég edrú þennan dag. En af hverju ég hafi skrifað undir — ég verð bara að viðurkenna hér og nú að ég geri mér ekki grein fyrir því. En þetta sannar enn og aftur að ég er mannlegur.