131. löggjafarþing — 104. fundur,  6. apr. 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[12:00]

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 6. þm. Suðvest., Sigríði A. Þórðardóttur, dagsett 4. apríl 2005:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvest., Sigurrós Þorgrímsdóttir stjórnmálafræðingur, Kópavogi, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

 

Sigurrós Þorgrímsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.