141. löggjafarþing — 104. fundur, 15. mars 2013.
starfsmannaleigur.
606. mál
Frú forseti. Með þessu frumvarpi er verið að herða á lögum gegn félagslegum undirboðum á vinnumarkaði. Það er mjög ánægjulegt til þess að hugsa að aðilar vinnumarkaðarins voru samstíga í þessu máli sem og velferðarnefnd í heild sinni.
Með samþykki þessa frumvarps erum við að vernda kjör launafólks á íslenskum vinnumarkaði.