150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

varamaður tekur þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 10. þm. Norðaust., Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, um að hún verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, María Hjálmarsdóttir.

Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.