144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[15:26]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill af þessu tilefni árétta það sem fram kom í máli hans í upphafi að hér er um að ræða úrskurð forseta þar sem þess var óskað að forseti felldi úrskurð varðandi þetta mál þegar málið var afgreitt úr atvinnuveganefnd á sínum tíma. Forseti hefur lagst yfir það, kallað til sína sérfræðinga, reynt að vinna þetta mál af kostgæfni og hefur nú kynnt þennan úrskurð sinn. Hér er ekki um að ræða lögfræðilegt álit í þeim skilningi, hér er um að ræða úrskurð forseta varðandi þau álitaefni sem hann gerði grein fyrir hér í upphafi.