150. löggjafarþing — 105. fundur, 19. maí 2020.
tilhögun þingfundar.
Forseti ráðgerir að hefja strax að loknum umræðum um störf þingsins umræðu um 3. dagskrármálið og reyna síðan að ljúka umræðum um allnokkur þingmál til viðbótar áður en farið verður í atkvæðagreiðslur dagsins. Þær ættu að verða um kl. 17 í síðasta lagi, nema ef umræðu um öll dagskrármálin skyldi verða lokið fyrr.