141. löggjafarþing — 106. fundur,  18. mars 2013.

lengd þingfundar.

[10:34]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag heldur en þingsköp kveða á um. — Forseti hafði borið þessa tillögu upp fyrr á fundinum og það var óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillöguna.