141. löggjafarþing — 106. fundur, 18. mars 2013.
neytendalán.
220. mál
Virðulegur forseti. Hér er verið að tryggja það að hækki kostnaður við lántöku með breytingum á vaxtakjörum eða verðbólgu sé lánveitandanum skylt að gera neytandanum aðvart um það með mánaðarfyrirvara. Er það framför frá því sem nú er.