140. löggjafarþing — 107. fundur, 25. maí 2012.
heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.
718. mál
Hæstv. forseti. Ég kem upp í pontu bara til að segja eitt að ég ætla mér ekki þá dul að fara að ræða tæknilegar útfærslur á Hegraneshringnum. Sérfræðingar Vegagerðarinnar væru betur til þess fallnir en ég. En mér þótti vænt um að heyra þau ágætu orð sem hv. þingmaður lét falla í garð Vegagerðarinnar og starfsmanna hennar.