151. löggjafarþing — 107. fundur,  4. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[15:53]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að kynna breytingartillögur við málið frá mér og hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni og hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur. Í síðastliðnum mánuði misstu rúmlega 350 atvinnuleitendur rétt til atvinnuleysisbóta tímabundið eða varanlega eftir að hafa hafnað starfi. Núgildandi lög gera ráð fyrir því að atvinnuleitandi geti misst rétt til atvinnuleysisbóta við það að hafna starfi, jafnvel þó að starfið sem honum bjóðist samræmist ekki á nokkurn hátt starfsreynslu og menntun hans. Ljóst er að endurskoða þarf 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, um tímabundna sviptingu bótaréttar ef starfi er hafnað, en þangað til slík endurskoðun hefur farið fram er í það minnsta nauðsynlegt að tryggja að bótaréttur tapist ekki þegar einstaklingur hafnar starfi sem er ekki í nokkru samræmi við fyrri starfsreynslu hans eða menntun og snýr breytingartillagan að því.