Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 107. fundur,  10. maí 2023.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2022.

809. mál
[18:12]
Horfa

Frsm. ÍVN (Bjarni Jónsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2022.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Steinunni Þóru Árnadóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Hildi Edwald, ritara Íslandsdeildar.

Með tillögunni er skorað á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd fjögurra ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 30. til 31. ágúst 2022.

Í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 1/2022 hvetur ráðið samstarfsráðherra til að efla árlega skýrslugjöf sína með því að skiptast á að vera í forsvari fyrir sameiginlega skýrslugerð til ráðsins í samræmi við samstarfssamning sem gerður var árið 2022 milli Vestnorræna ráðsins annars vegar og ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands hins vegar.

Í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 2/2022 er kallað eftir því að barnamálaráðherrar Vestur-Norðurlanda haldi samráðsfund á árinu 2023 og beri saman reynslu og gögn landanna um stöðu ungmenna hvað varðar heilbrigði, líðan, tómstundaiðkun, samfélagsmiðlanotkun og önnur viðfangsefni.

Með ályktun nr. 3/2022 skorar Vestnorræna ráðið á ríkisstjórnir Vestur-Norðurlanda að rannsaka og bera saman stefnu og fyrirkomulag landanna þriggja í náttúrutengdri ferðaþjónustu, þar með talið aðgengi að og verndun náttúrunnar í tengslum við vaxandi ferðaþjónustu í löndunum með það að markmiði að greina bestu starfsvenjur.

Með ályktun nr. 4/2022 eru jafnréttisráðherrar landanna þriggja hvattir til að halda fund á árinu 2023 til að bera saman bækur sínar um framfylgd áætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar um jafnréttismál árin 2019–2024, þar á meðal viðauka við áætlunina um jöfn réttindi og möguleika hinsegin fólks. Þá eru ráðherrarnir hvattir til að leita lausna á mögulegum sameiginlegum vestnorrænum úrlausnarefnum á vettvangi jafnréttismála.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Diljá Mist Einarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Jakob Frímann Magnússon var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Undir álitið rita Bjarni Jónsson, Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Teitur Björn Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.