Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 108. fundur,  15. maí 2023.

leiga skráningarskyldra ökutækja.

751. mál
[16:06]
Horfa

Helgi Héðinsson (F):

Forseti. Sem framsögumaður málsins mæli ég fyrir breytingartillögu við frumvarpið. Breytingin er tæknilegs eðlis og er ætlað að tryggja rétta tilvísun í 7. gr. frumvarpsins og þar með skýrleika ákvæðisins. Ég legg áherslu á að breytingartillagan verði samþykkt en henni er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið utan þess að skýra það betur.