Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 108. fundur,  15. maí 2023.

safnalög o.fl.

741. mál
[16:15]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands (samráð og skipunartími).

Markmið frumvarpsins er tvíþætt, annars vegar að samræma skipunartíma forstöðumanna höfuðsafnanna þriggja, sem eru Listasafn Íslands, Náttúruminjasafn Íslands og Þjóðminjasafn Íslands, og hins vegar að formgera árlegt samráð safnafólks með safnaráði og ráðherra.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega nokkur atriði.

Nefndin fjallaði um hámarksskipunartíma forstöðumanna Náttúruminjasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands. Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að endurnýja ráðningu þjóðminjavarðar Þjóðminjasafns Íslands og safnstjóra Náttúruminjasafns Íslands einu sinni til fimm ára, til samræmis við það sem á við um skipunartíma safnstjóra Listasafns Íslands samkvæmt myndlistarlögum, nr. 64/2012.

Meginreglu um skipunartíma forstöðumanna ríkisstofnana er að finna í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, þar sem segir í 23. gr. að embættismenn skuli skipaðir tímabundið til fimm ára í senn, nema annað sé tekið fram í lögum. Framlengist sá skipunartími til næstu fimm ára ef embættið er ekki auglýst laust til umsóknar áður en skipunartími rennur út.

Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem komu fram fyrir nefndinni um að mikilvægt sé að stuðla að eftirsóknarverðu starfsumhverfi fyrir forstöðumenn ríkisins og tryggja endurgjöf og tækifæri til starfsþróunar. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir markmið frumvarpsins og telur málefnalegar og faglegar forsendur fyrir því að kveða á um hámarksskipunartíma forstöðumanna höfuðsafnanna.

Þá fjallaði nefndin um 1. gr. frumvarpsins sem varðar breytingu á safnalögum, nr. 141/2011, þess efnis að koma skuli á formlegu samráði milli fulltrúa höfuðsafna og fagfélaga, safnaráðs og ráðherra og að safnaráð skuli boða tilgreinda aðila til samráðsfundar a.m.k. árlega. Meiri hlutinn fagnar auknu samráði sem stuðlar að aukinni upplýsingagjöf og skoðanaskiptum.

Nefndin fjallaði að auki um hugtakanotkun, þ.e. um notkun orðanna „forstöðumaður“ og „safnstjóri“ í lögum.

Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til eftirfarandi breytingar á frumvarpinu: Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar gildistöku ákvæða um breytingar á hámarksskipunartíma forstöðumanna. Til að taka af öll tvímæli um gildistöku leggur meiri hlutinn til að við gildistökuákvæði frumvarpsins í 4. gr. bætist ný málsgrein þess efnis að 2. efnismálsliður a-liðar 2. gr. og a-liður 3. gr. öðlist gildi við næstu skipun í embætti forstöðumanns eða þegar skipunartími verður framlengdur eftir gildistöku laganna.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar hugtakanotkun. Í umsögn Náttúruminjasafns Íslands er lagt til að fella orðið „safnstjóri“ út í 5. gr. laga um Náttúruminjasafn Íslands og vísa aðeins til forstöðumanns. Í minnisblaði menningar- og viðskiptaráðuneytisins til nefndarinnar er vísað til þess að það sé skýrt í lögskýringargögnum að starfsheiti forstöðumanns sé „safnstjóri“, auk þess sem það sé til samræmis við starfsheiti forstöðumanns Listasafns Íslands samkvæmt myndlistarlögum, nr. 64/2012, en í lögum um Þjóðminjasafn Íslands, nr. 140/2011, er vísað til þjóðminjavarðar sem starfsheitis forstöðumanns. Meiri hlutinn leggur þó til breytingu þess efnis að í 3. gr. frumvarpsins verði í stað forstöðumanns vísað til safnstjóra, til samræmis við sambærilegt ákvæði myndlistarlaga.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Jódís Skúladóttir, Birgir Þórarinsson og Jóhann Friðrik Friðriksson.