149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:28]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð að samsinna hv. þm. Bergþóri Ólasyni um leið og ég þakka honum svarið.

Mig langar, með leyfi hæstv. forseta, að vitna í ræðu hæstv. utanríkisráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar frá 9. apríl sl. í fyrri umræðu þessarar þingsályktunartillögu:

„Í því sambandi skiptir líka afar miklu máli sameiginlegur skilningur með orkumálastjóra ESB á þeirri sérstöðu sem Ísland nýtur gagnvart sameiginlegum orkumarkaði. Þeir sérfræðingar sem leitað hefur verið til eru líka á einu máli um að sá sameiginlegi skilningur styrki mjög þær forsendur sem við leggjum til grundvallar innleiðingunni. Þótt yfirlýsingin hafa ekki bein lagaleg áhrif hefur hún lagalega þýðingu, enda sýnir hún fram á að samningsaðilar okkar hafa sama skilning og við á þeim forsendum sem við byggjum innleiðinguna á.“

Forsendurnar sem innleiðingin er byggð á eru lagalegir fyrirvarar, en þessi yfirlýsing hefur þó ekki lagalega þýðingu. Telur hv. þingmaður að það skipti máli?