151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

skýrsla um leghálsskimanir.

[13:54]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Mig langar til að taka undir með hv. formanni velferðarnefndar varðandi það hversu erfitt virðist vera að fá ráðherra fyrir nefndina. Mig langar líka að spyrja hæstv. forseta um ráð. Hver er ábyrgð ráðherra þegar kemur að því að mæta fyrir fastanefndir Alþingis þegar beðið er um það? Mér finnst þetta svo furðulegt að ráðherrar geti bara trekk í trekk sagt: Nei, ég kemst ekki, er of upptekinn, ætla ekki að mæta.

Er hefð fyrir þessu? Er þetta bara allt í lagi, forseti? Ég spyr af því að ég átta mig ekki alveg á því hvert maður á að snúa sér í þessu máli. Það hlýtur að vera þannig að ef fastanefnd Alþingis biður ráðherra um að koma fyrir nefndina þá sé það í einhvers konar forgangi hjá ráðherra að koma fyrir nefndina. Við erum búin að eiga í erfiðleikum með heilbrigðisráðherra og líka félags- og barnamálaráðherra í risastórum málum sem mér finnst í raun og veru ótækt að hafi verið tekin út úr nefnd og séu komin núna í 3. umr. án þess að við höfum fengið að tala við ráðherra. Mér þætti vænt um að heyra frá forseta um hvað við eigum til bragðs að taka þegar ráðherrar koma svona fram.