140. löggjafarþing — 110. fundur, 31. maí 2012.
sjúkratryggingar og lyfjalög.
256. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég geri þá ráð fyrir því að við í velferðarnefnd munum taka þetta mál fyrir og setja það á dagskrá fundar nefndarinnar í byrjun september til að skoða hvernig undirbúningur hefur farið fram og hvernig staðan er, með það í huga að meta hvort hér sé farið of bratt af stað.