140. löggjafarþing — 110. fundur,  31. maí 2012.

menningarminjar.

316. mál
[17:02]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um menningarminjar.

Frumvarp þetta á sér langan aðdraganda. Það var áður lagt fyrir á 139. löggjafarþingi, var þá mál nr. 651, samhliða þremur öðrum frumvörpum sem öll urðu að lögum á því þingi. Þetta voru lög um skil menningarverðmæta til annarra landa, safnalög og lög um Þjóðminjasafn Íslands sem munu öll öðlast gildi 1. janúar 2013. Verði frumvarp þetta að lögum munu þau lög öðlast gildi á sama tíma. Frumvarpið varð ekki útrætt á 139. löggjafarþingi þar sem rétt þótti að skoða betur ábendingar sem þáverandi menntamálanefnd bárust við umfjöllun um frumvarpið.

Megintilgangur þessa frumvarps er að auka skilvirkni minjavörslu með því að einfalda stjórnsýslu, skýra betur hugtök og verklag og samræma verklag og afgreiðslu mála. Í frumvarpinu er lagt til að ný stofnun, Minjastofnun Íslands, taki við þeirri starfsemi sem nú heyrir undir Fornleifavernd ríkisins og húsafriðunarnefnd. Með þessu er leitast við að styrkja stjórnsýslu á þessu sviði og er sameiningin liður í endurskoðun og uppbyggingu þeirra menningarstofnana sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Helstu nýmæli sem felast í frumvarpinu, virðulegur forseti, eru eftirfarandi:

Í I. kafla eru hugtök skýrð, t.d. hugtakið þjóðminjar, og kveðið á um skyldu Þjóðminjasafns Íslands og Minjastofnunar Íslands til að halda skrár yfir þjóðminjar. Þá er hugtakið þjóðarverðmæti notað í samræmi við hugtakanotkun í 93/7/EBE um að skila menningarminjum sem hafa verið fluttar ólöglega frá yfirráðasvæði aðildarríkis. Jafnframt er skerpt á skilgreiningu hugtaksins fornleifar. Horfið er frá því að miða aldursmörk friðaðra fornleifa við 100 ára aldur og í staðinn miðað við fast ártal, ártalið 1900. Í nokkrum stafliðum í 3. mgr. 3. gr. er talið upp hvað teljist til fornleifa. Þar er m.a. getið um samgöngumannvirki og því um líkt en bent var á við umfjöllun um málið að Vegagerðin hefði um árabil haldið skrá yfir brýr o.fl. án þess að þess væri getið sérstaklega í þessu frumvarpi. Einnig eru hugtökin fornleifarannsókn og skyndirannsókn skýrð og kveðið á um hlutverk Minjastofnunar Íslands gagnvart fornleifarannsóknum. Kveðið er á um framkvæmd og fjármögnun skyndirannsókna og þá er hugtakið mannvirki skilgreint á skýrari hátt en áður.

Virðulegur forseti. Í II. og III. kafla frumvarpsins er fjallað um stjórnsýslu og Minjastofnun Íslands sem áður er nefnd. Þar er greint frá skipulagi og meðal annars gert ráð fyrir í 13. gr. III. kafla að minjaverðir, sem falla undir Minjastofnun Íslands, sinni víðtækara hlutverki en samkvæmt gildandi þjóðminjalögum. Í frumvarpinu sjálfu er tekið fram, virðulegur forseti, að minjaverðir skuli hafa háskólamenntun og sérþekkingu á einhverju þeirra fagsviða sem undir stofnunina falla. Í 8. og 9. gr. í II. kafla eru sérstök ákvæði um fornminjanefnd og húsafriðunarnefnd og kveðið á um breytt hlutverk fornminjanefndar, að hún verði fagnefnd með svipað hlutverk og húsafriðunarnefnd en ekki áfrýjunarnefnd eins og hún er samkvæmt gildandi þjóðminjalögum.

Í IV. kafla eru ákvæði um skráningu fornleifa, húsa og annarra mannvirkja en Minjastofnun Íslands mun og hefur samkvæmt frumvarpinu yfirumsjón með slíkri skráningu.

Ég vil leggja áherslu á, virðulegur forseti, 16. gr. frumvarpsins þar sem tekin er fyrir skráning vegna skipulags og undirbúnings framkvæmda. Þar er kveðið á um að áður en gengið er frá aðalskipulagi skuli liggja fyrir upplýsingar sem gefa greinargóða mynd af menningarminjum innan sveitarfélags. Þar er líka kveðið á um að sá sem beri ábyrgð á skipulagsgerð í samræmi við skipulagslög skuli standa straum af kostnaði við skráningu. Hins vegar skal ríkissjóður bera kostnað af fornleifaskráningu sem fram fer innan þjóðlendu nema um annað hafi sérstaklega verið samið. Í 16. gr. stendur einnig að skipulagsyfirvöld skuli tilkynna Minjastofnun Íslands um gerð skipulagsáætlana og verulegar breytingar á þeim og um gerð skýrslna um mat á umhverfisáhrifum. Ég held að vert sé að nefna þetta, virðulegur forseti, þó að því séu ekki sérstaklega gerð skil í nefndaráliti vegna þess að þarna er bundið í lög hvernig skráningu vegna skipulags og undirbúnings framkvæmda skuli háttað. Þessi grein er í IV. kafla frumvarpsins.

Í V. kafla er fjallað um friðlýsingu menningarminja og er friðlýsing færð til ráðherra í stað þess að vera á valdi undirstofnunar og gildistími skyndifriðunar lengdur í allt að sex vikur. Þá er sömuleiðis gert ráð fyrir því að Minjastofnun geti gert tillögu til ráðherra um friðlýsingu eða afnám friðlýsingar og að stofnunin skuli hafa samráð við skipulagsyfirvöld viðkomandi landsvæðis. Í frumvarpinu er skýr greinarmunur á annars vegar friðun og hins vegar friðlýsingu, en þess ber að geta að fram kom ósk eða beiðni frá hópi fornleifafræðinga um að þessi orð yrðu ekki bæði notuð heldur eingöngu „friðun“. Talið var af hálfu nefndarinnar og í samráði við ráðuneytið að þessi tvö orð þyrftu að vera nýtt því að í friðun felst sérstakt ástand sem leiðir annars vegar af aldri minja og hins vegar, t.d. þegar um kirkjugripi er að ræða, af ákvörðun þjóðminjavarðar en í friðlýsingu felst sérstök ákvörðun ráðherra, samkvæmt 18. gr. frumvarpsins. Þess ber að geta að friðlýsing getur falið í sér kvöð eða takmarkanir á meðferð fasteignar og samkvæmt 5. gr. frumvarpsins er friðlýsingu ávallt þinglýst.

Virðulegur forseti. VI. kafli fjallar um verndun og varðveislu fornminja. Þar er kveðið á um skyldu eiganda og ábúanda jarðar til að varðveita og viðhalda umhverfi fornleifa sem og um skyldu Minjastofnunar Íslands til þess að veita ráðgjöf í því sambandi.

Í VII. kafla er fjallað um verndun og varðveislu húsa og mannvirkja en þar er meðal annars að finna það nýmæli að skilgreint er hvað felst í friðun mannvirkja.

Í VIII. kafla er fjallað um rannsóknir en tilkynna skal Minjastofnun Íslands um allar fornleifarannsóknir í landinu. Stofnunin veitir leyfi til fornleifarannsókna sem hafa í för með sér jarðrask og skal stjórnandi fornleifarannsóknar uppfylla skilyrði sem Minjastofnun setur. Þá er mælt fyrir um að óheimilt sé að flytja úr landi lífræn eða ólífræn sýni úr fornleifarannsóknum nema með skriflegu leyfi stofnunarinnar. Þá er og að finna það nýmæli að kveðið er á um hvenær fornleifarannsókn sem hefur jarðrask í för með sér telst lokið.

Virðulegur forseti. Í IX. kafla er fjallað um minningarmörk, þ.e. friðlýsingu minningarmarka. Minjastofnun Íslands hefur umsjón og eftirlit með legsteinum og öðrum minningarmörkum í kirkjugörðum landsins ásamt minningarmörkum utan þeirra.

Í X. kafla er að finna ákvæði um fornminjasjóð og húsafriðunarsjóð.

Í XI. kafla er fjallað um flutning menningarminja úr landi. Þar er að finna það nýmæli að í ákveðnum tilfellum skuli leyfi til flutnings menningarminja til annarra landa veitt þó svo að þær kunni að hafa umtalsvert gildi fyrir íslenska þjóðmenningu. Upptalning á þeim minjum sem Minjastofnun getur veitt leyfi til flutnings úr landi er að finna í 47. gr. undir orðinu leyfisveiting.

Nefndin leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu en þess ber þó að geta að ég mun óska eftir því að málið verði tekið til nefndar á milli 2. og 3. umr. þar sem óskað hefur verið eftir að ákveðnir þættir verði skoðaðir. Sú ósk mín að það verði gert felur ekki í sér af minni hálfu sem framsögumanns nefndarinnar að til standi að fara í stórvægilegar breytingar á frumvarpinu heldur er vert að verða við þeirri beiðni, en ítreka skal að í því felst hvorki loforð um breytingar á því nefndaráliti sem hér liggur fyrir né heldur breytingar á þeim breytingum sem nefndin leggur til.

Ég mun nú aðeins fara yfir þær breytingar sem nefndin leggur til á frumvarpinu.

Í 4. gr. er skilgreint hvað teljist til byggingararfs. Nefndin leggur til að orðalag 1. málsliðar greinarinnar verði lagfært þannig að þar verði kveðið á um að til byggingararfs teljist hús og önnur mannvirki og einstakir hlutar þeirra.

Í 10. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að landinu skuli skipt í minjasvæði og að á hverju svæði starfi minjaráð, samráðsvettvangur hvers minjasvæðis. Í ákvæðinu er tekið fram að minjaráð hafi samráð við Minjastofnun Íslands og höfuðsöfn. Nefndin leggur til viðbót við 2. mgr. þess efnis að minjaráð hafi einnig samráð við helstu söfn og stofnanir sem vinna að varðveislu menningarminja.

Virðulegur forseti. Samkvæmt 1. mgr. 18. gr. frumvarpsins má friðlýsa fornleifar, hús og mannvirki eða þá hluta þeirra sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Gera má ráð fyrir að þessi heimild verði einkum notuð til að vernda yngri menningarminjar en friðunarákvæði á grundvelli aldurs ná til. Eðlilegt má telja að heimild til friðlýsingar samkvæmt 18. gr. nái einnig til báta og skipa og leggur nefndin til að þeim verði bætt við upptalningu í 1. mgr.

Samkvæmt 20. gr. getur Minjastofnun Íslands ákveðið skyndifriðun staðbundinna menningarminja. Nefndin leggur til að orðið „staðbundinna“ falli brott enda takmarkar það þær menningarminjar sem geta fallið undir ákvæðið. Með því að fella orðið brott og vísa eingöngu í skyndifriðun menningarminja nær ákvæðið einnig til skipa, báta og annarra forngripa.

Í 40. gr. er fjallað um lok fornleifarannsóknar. Nefndin leggur til tvenns konar lagfæringar á orðalagi. Annars vegar að í 1. mgr. verði kveðið á um að gripum sem finnist og sýnum sem tekin séu skuli skilað samkvæmt því sem þar er nánar mælt fyrir um og hins vegar að í 4. mgr. verði vísað til 1. mgr.

Einnig eru lagðar til ýmsar orðalagsbreytingar í 45. gr. til lagfæringar.

Í 1. mgr. 55. gr. er Minjastofnun Íslands veitt heimild til að leggja dagsektir á þann sem vanrækir þau atriði sem talin eru upp í a–e-lið. Nefndin leggur til breytingu á greininni svo að skýrt sé að heimildin beinist að framkvæmdaraðila. Einnig er lagt til að í b-lið 1. mgr. verði tilvísun lagfærð.

Samkvæmt 57. gr. er ráðherra heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga í reglugerð en nefndin leggur til að við greinina bætist ný málsgrein þess efnis að hafa skuli samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga varðandi reglugerð fornleifaskráningar og húsafriðunar.

Að öðru leyti, virðulegur forseti, vísa ég til breytinga á þskj. 1346 um þetta 316. mál þar sem nánar er farið í orðalag og orðalagsbreytingar á hverri þeirri grein sem ég hef hér nefnt.

Allsherjar- og menntamálanefnd leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í því sérstaka þingskjali sem ég nefndi. Hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nefndarálitið rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Skúli Helgason, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Þuríður Backman, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Þráinn Bertelsson, Siv Friðleifsdóttir og Birgitta Jónsdóttir.