136. löggjafarþing — 111. fundur, 23. mars 2009.
tilkynning.
Um klukkan hálffjögur í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram utandagskrárumræða um arðgreiðslur í atvinnurekstri. Málshefjandi er hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson. Hæstv. forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.
Þá vill forseti láta þess getið um þinghaldið í dag að ekki er gert ráð fyrir atkvæðagreiðslum um dagskrármálin á þessum degi.