141. löggjafarþing — 111. fundur,  26. mars 2013.

hlutafélög.

661. mál
[23:13]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða frumvarp frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd, samstöðunefndinni miklu, enda er eingöngu friðarins fólk í þeirri hv. nefnd. Það er að sjálfsögðu samstaða um þetta mál sem eykur rétt minni hluthafa. Það skiptir máli og er mikilvægt. Við leggjum því til að þetta verði samþykkt þó að ganga megi lengra þegar kemur að því að auka rétt minni hluthafa.