141. löggjafarþing — 111. fundur, 26. mars 2013.
sala fasteigna, fyrirtækja og skipa.
665. mál
Virðulegi forseti. Hér er um nokkur tímamót að ræða þó að þetta sé ekki stórt og mikið mál frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Um er að ræða frumvarp sem kemur á þessu kjörtímabili og miðar að því að lækka gjöld. Það gerist ekki á hverjum degi. Ég get ekki annað en greitt atkvæði með því.