145. löggjafarþing — 111. fundur, 17. maí 2016.
frumvarp um tollasamning.
Forseti getur upplýst að hann gerir ráð fyrir að þingmálinu með tollasamningnum verði dreift hér á Alþingi á allra næstu dögum og stefnir að því að málið verði tekið til umræðu í byrjun næstu viku. Eins og hv. þingmenn vita eru nefndadagar á fimmtudag og föstudag en strax í upphafi næstu viku er það ætlun forseta að þessi mál verði á dagskrá.