136. löggjafarþing — 112. fundur, 25. mars 2009.
fundarstjórn.
Herra forseti. Við erum enn einu sinni að verða vitni að því að ákveðinn stjórnmálaflokkur er í málþófi. Er að tefja hér umræðuna eins og hefur skeð síðustu vikur. Ég geri athugasemd við það að ef menn vilja að við förum heim fyrir klukkan sex í fyrramálið þá fari menn að hætta því málþófi sem hér fer fram. Ég hvet sjálfstæðismenn til að hætta þessu málþófi. Það er komið nóg í bili.