136. löggjafarþing — 113. fundur,  25. mars 2009.

ASÍ.

[13:45]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Ásta R. Jóhannesdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Nú þekki ég þetta mál ekki en sá á forsíðu dagblaðs í morgun að verið var að fjalla um það. Ég á mjög erfitt með að svara hv. þingmanni ítarlega um lagagreinar hvað þetta varðar. Ég er tilbúin til að láta skoða þetta í félagsmálaráðuneytinu ef hv. þingmaður telur ójafnræðis hafa verið gætt eða að þetta varði jafnréttislög og þá er ég líka tilbúin til að láta Jafnréttisstofu skoða þann þátt. Ég get ekki svarað þessu frekar að svo stöddu þar sem ég hef hvorki efnisatriði né lagagreinar fyrir framan mig.