144. löggjafarþing — 113. fundur, 27. maí 2015.
rannsókn kjörbréfs.
Eins og fram kom í máli formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar mælir nefndin einróma með samþykkt kjörbréfsins og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.
Eldar Ástþórsson, 6. þm. Reykv. n., hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Eldar Ástþórsson undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]