almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu umferð.
Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.
Fyrir Miðflokkinn tala Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurk., í annarri og í þeirri þriðju Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Reykv. s.
Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Haraldur Benediktsson, 1. þm. Norðvest., í fyrstu umferð, í annarri Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 5. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Óli Björn Kárason, 10. þm. Suðvest.
Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurk., í annarri Guðmundur Andri Thorsson, 4. þm. Suðvest., og í þeirri þriðju Helga Vala Helgadóttir, 4. þm. Reykv. n.
Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, Lilja Rafney Magnúsdóttir, 3. þm. Norðvest., í annarri og í þriðju umferð Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykv. n.
Ræðumenn Pírata eru í fyrstu umferð Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n., í annarri Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þm. Reykv. n., og Olga Margrét Cilia, 4. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.
Ræðumenn Framsóknarflokksins eru Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Líneik Anna Sævarsdóttir 9. þm. Norðaust., í annarri og í þriðju umferð Halla Signý Kristjánsdóttir, 7. þm. Norðvest.
Fyrir Viðreisn tala í fyrstu umferð Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykv. n., í annarri Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvest.
Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þm. Reykv. s., í fyrstu og þriðju umferð, en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvest., í annarri umferð.