149. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2019.

almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).

[19:56]
Horfa

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Margir ráku upp stór augu þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð fyrir einu og hálfu ári og hefur mörgum orðið tíðrætt um það síðan hvað samstarf þessara þriggja flokka sé óvenjulegt. Það kemur hins vegar betur og betur í ljós, einu og hálfu ári eftir að ríkisstjórnin tók til starfa, að breið samstaða skilar árangri. Stundum þarf að setjast aðeins yfir málin en niðurstaðan er oftast nær breið og þétt samstaða.

Á eldhúsdegi fyrir ári ræddi ég um ferska vinda í verkalýðshreyfingunni og mikilvægi samstarfs stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar. Nú í vor sáum við ávöxt þeirrar samvinnu þegar lífskjarasamningur var undirritaður þann 3. apríl eftir afar strembnar samningaviðræður. Samhliða því að aðilar vinnumarkaðarins skrifuðu undir kjarasamninga þar sem áhersla var lögð á þá sem standa höllustum fæti í samfélaginu kynnti ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur 45 aðgerðir honum til stuðnings.

Meðal þeirra er lenging fæðingarorlofs í 12 mánuði sem er ekki einungis bót fyrir barnafólk heldur einnig mikilvægt jafnréttismál. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lagt er til að lengja fæðingarorlof en nú mun það standa. Jafnari hlutur foreldra í orlofi ætti jafnframt að stuðla að jafnari stöðu foreldra þegar snúið er aftur á vinnumarkað eftir barneignir.

Það var líka sérstakt ánægjuefni að samningsaðilar komu sér saman um að leggja áherslu á hækkanir til þeirra lægst launuðu í samningunum. Til að koma enn frekar til móts við þann hóp voru einnig kynntar breytingar á skattkerfinu með nýju lágtekjuskattsþrepi og jafnframt breytingum á barnabótakerfinu sem koma þeim launalægstu best.

Unga fólkið hefur mátt sitja eftir í hagsveiflu undanfarinna ára og það þarf ekki að fjölyrða hér um húsnæðisvandann sem sérstaklega hefur komið niður á ungu fólki og einstæðum foreldrum. Það er mikilvægt að húsnæðiskostnaður éti ekki upp stóran hluta ráðstöfunartekna fólks, enda á að vera sjálfsagt að fólk hafi í sig og á eftir að reikningar hafa verið greiddir í byrjun hvers mánaðar — það eiga ekki að vera forréttindi. Þess vegna skiptir aukinn stuðningur í húsnæðismálum sérstaklega miklu máli. Þar má nefna hlutdeildarlán, nýja tegund af húsnæðislánum fyrir tekjulága, skýrari reglur um leiguvernd, ráðstöfun ríkislóða fyrir íbúðir og að úrræði vegna fyrstu kaupa nýtist þeim sem hafa ekki átt íbúð í fimm ár. Þar að auki stendur til að endurvekja félagslegt húsnæðiskerfi með stofnstyrkjum til uppbyggingar allt að 1.800 íbúða til viðbótar þeirri uppbyggingu sem nú er í gangi. Allt mun þetta stuðla að því að fólk hafi raunverulegt val um það hvort það vill eiga húsnæði eða búa í öruggu leiguhúsnæði.

Kæru landsmenn. Þegar þessi ríkisstjórn lagði af stað fyrir rúmu einu og hálfu ári voru óvissuteikn á lofti. Spennan í þjóðarbúskapnum dróst hraðar saman en spár gerðu ráð fyrir, óvissa ríkti á vinnumarkaði og svo raungerðist það sem margir höfðu spáð um langa hríð, að ein stærsta atvinnugreinin okkar, ferðaþjónustan, stendur nú frammi fyrir samdrætti. Þannig hefur dregið úr vextinum og í nýútkominni spá Hagstofu Íslands er spáð samdrætti í hagkerfinu á þessu ári. Því hljótum við að bregðast við. En í tengslum við áætlunargerð ríkisins hef ég ávallt talað um að það þurfi að vera sveigjanleiki í áætlunum. Gangi þær spár ekki eftir sem áætlanir byggja á verðum við að aðlaga áætlanirnar.

Sem betur fer hefur þessi ríkisstjórn skilið eftir talsvert svigrúm í afkomu ríkissjóðs til að mæta slíkum áföllum. Ísland stendur vel og enginn þarf að óttast að við ráðum ekki við skammtímaáfall á borð við gjaldþrot flugfélags eða loðnubrest. Í fyrsta skipti í áratugi eiga Íslendingar meiri eignir erlendis en þeir skulda og Seðlabankinn hefur brugðist við kólnun hagkerfisins með því að veita súrefni inn á kerfið, m.a. með því að lækka vexti um hálft prósentustig í síðustu viku. Það skilar sér aftur í lægri greiðslubyrði húsnæðislána, meiri krafti í fjárfestingu o.s.frv.

Í þetta skiptið er Ísland reiðubúið undir kólnun, enda hafa landsmenn aukið þjóðhagslegan sparnað, skuldir hafa verið greiddar niður og skynsamlegir kjarasamningar gerðir. Ég er því full bjartsýni á að við náum farsælli lendingu.

Kæru landsmenn. Ég hafði leyft mér að hlakka til að geta staðið hér og farið yfir fjölmörg góð mál sem munu koma sér vel fyrir Íslendinga, t.d. heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem verður grundvallarplagg til að betrumbæta heilbrigðisþjónustu og halda utan um hana hér á landi. Fyrir þinginu liggur líka þingsályktunartillaga um áætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess — löngu tímabært mál, enda hafa undanfarin ár sýnt okkur að samfélagið, og í raun heimurinn allur, hefur sofið á verðinum í baráttunni gegn ofbeldi.

Ríkisstjórnarflokkarnir samþykktu á dögunum frumvarp félagsmálaráðherra um meðferð atvinnutekna og sérstaka uppbót vegna framfærslu. Á mannamáli þýðir það fyrsta skrefið til að afnema krónu á móti krónu skerðinguna. Þá liggja fyrir góð þingmannamál, svo sem lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og frumvarp um réttindi barna sem aðstandenda þegar foreldri glímir við alvarleg veikindi eða fellur frá. En það er alls óvíst hvort og þá hvenær þessi mál ná hér fram að ganga vegna þeirrar stöðu sem við stöndum nú frammi fyrir vegna þess að einn þingflokkur hefur tekið það að sér að tala hér í rúmar tvær vikur á milli þess sem hann reynir að sannfæra þing og þjóð um að flokkurinn stundi alls ekki málþóf. Á meðan bíðum við hin 54 sem eigum sæti á Alþingi eftir því að geta tekið þessi góðu og þörfu mál til umræðu og afgreiðslu.

149. þing hefur verið starfsamt og afkastamikið og nú er komið að því að uppskera. Þannig virkar Alþingi, þingið okkar, í lýðræðislegu samfélagi. Það er óásættanlegt að einn þingflokkur taki sér þá stöðu að halda löggjafanum og þar með lýðræðinu í uppnámi. Slíkt á ekki að líðast.

Forseti. Meiri hluti Alþingis vill ljúka 149. þingi með afgreiðslu mála eins og lög gera ráð fyrir. Á þessum bjarta degi er þrátt fyrir allt full ástæða fyrir sóknarhug og bjartsýni. Samfélagið á það skilið að við höldum áfram að sækja fram, fyrir landsmenn og fyrir framtíðina. — Góðar stundir.