150. löggjafarþing — 113. fundur,  3. júní 2020.

forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021-2025.

643. mál
[15:37]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér er mjög gott mál sem ég er fylgjandi. Ég hefði þó viljað sjá Jafnréttisstofu með mun stærra hlutverk. Jafnréttisstofa ber ábyrgð á tveimur aðgerðum en ég tel að hún búi yfir allri þeirri þekkingu á málaflokknum sem þarf til og hugsanlega mun henni í framtíðinni ætlað stærra hlutverk. Ég vona að svo verði.