132. löggjafarþing — 113. fundur, 2. maí 2006.
Stofnun hlutafélags um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.
734. mál
Herra forseti. Ég held að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið þegar hún lýsti ræðu minni hér á undan. Það er bara oft þannig að þegar sannleikurinn kemur í ljós, þá er hann ekkert voðalega spennandi. Hann er bara einfaldur og einfaldar skýringar á hlutunum og plottin miklu færri en þeir sem sjá þau.