150. löggjafarþing — 114. fundur,  8. júní 2020.

afbrigði.

[15:06]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Svo háttar til um 11. dagskrármálið að þingmálinu var útbýtt eftir 1. apríl og ekki er liðinn sá frestur sem 3. mgr. 37. þingskapa áskilur, þ.e. svokölluð fimm daga reglu. Þarf því að leita samþykkis fyrir því að taka málið á dagskrá. Lítur forseti svo á að afbrigðin séu samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.

Enginn hreyfir andmælum og eru afbrigðin því samþykkt og málið kemur til umræðu síðar á þessum fundi.

Svo háttar til um 3., 4. og 5. dagskrármálið að of skammt er liðið frá útbýtingu breytingartillagna í þeim. Þarf því að leita samþykkis fyrir því að taka breytingartillögurnar á dagskrá. Afbrigðin skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum. (Gripið fram í.)

Hreyft er andmælum og verða greidd atkvæði um afbrigðin samhliða atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.