151. löggjafarþing — 115. fundur,  13. júní 2021.

fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.

668. mál
[00:52]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Mig langaði að nýta tækifærið hér í lokin til að þakka fyrir að brugðist hafi verið við óskum Pírata. Við hv. framsögumaður, Kolbeinn Óttarsson Proppé, náðum saman um að passa upp á að tekið yrði tillit til sjónarmiða Persónuverndar. Það var það sem stóð í okkur Pírötum. Ég þakka fyrir það samstarf sem tryggði að við gætum öll landað þessu máli í sátt.