144. löggjafarþing — 115. fundur, 29. maí 2015.
Afbrigði um dagskrármál.
Virðulegur forseti. Þrátt fyrir þetta sleifarlag ríkisstjórnarinnar greiðir stjórnarandstaðan fyrir því að taka megi samgönguáætlun til fyrri umr. í dag, á þeim degi þegar þingið ætti að vera farið heim.
Ég vildi spyrja hæstv. forseta, enda gjörkunnugur málum, hvort þess séu einhver dæmi að samgönguáætlun sé lögð fram eftir framlagningarfrest á þingi, hvort þetta sé ekki algert einsdæmi.