151. löggjafarþing — 115. fundur,  13. júní 2021.

veiting ríkisborgararéttar.

867. mál
[00:57]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að Alþingi eigi ekki að veita ríkisborgararétt, það eigi að vera í höndum stofnana. Ég hef lagt fram frumvarp í því skyni sem því miður hefur ekki komist á dagskrá þingsins en kemst vonandi á dagskrá síðar. Ég sit því hjá við þessa atkvæðagreiðslu.