149. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2019.

rafræn auðkenning og traustþjónusta fyrir rafræn viðskipti.

634. mál
[15:15]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti. Nefndarálitið er á þskj. 1528 og er frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund fulltrúa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, fulltrúa frá Samtökum iðnaðarins og Auðkenni ehf. og auk þess gesti frá Neytendastofu.

Með frumvarpinu er ætlunin að setja ný heildarlög um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti sem leysa munu af hólmi lög um rafrænar undirskriftir, nr. 28/2001, og innleiða í íslenskan rétt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 910/2014 frá júlí 2014.

Í reglugerðinni er m.a. kveðið á um skyldu veitenda traustþjónustu til að skila eftirlitsstjórnvöldum svokallaðri samræmismatsskýrslu þar sem rökstyðja skal að fullgildir traustþjónustuveitendur og þjónustan sem þeir veita uppfylli kröfur reglugerðarinnar. Hagsmunaaðilar hafa bent á að gerð slíkrar skýrslu sé kostnaðarsöm og tímafrek og að ekki sé unnt að ráðast í gerð hennar fyrr en lögin hafa tekið gildi og nauðsynleg fyrirmæli, samanber m.a. f-lið 8. gr. frumvarpsins, verið sett í reglugerð. Í samráði við ráðuneytið leggur nefndin til að viðeigandi aðilum verði veittur frestur til 1. september 2020 til að leggja fram slíka skýrslu og að líta skuli á vottunaraðila sem uppfylla kröfur samkvæmt V. kafla gildandi laga um rafrænar undirskriftir sem fullgilda traustþjónustuveitendur þar til skýrslu hefur verið skilað og mat Neytendastofu farið fram.

Þá leggur nefndin til leiðréttingu á tilvísun og er með breytingartillögur sem fylgja þessu nefndaráliti.

Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis. Undir nefndarálit þetta ritar sá er hér stendur, Óli Björn Kárason, og hv. þingmenn Þorsteinn Víglundsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Birgir Þórarinsson, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Smári McCarthy og Silja Dögg Gunnarsdóttir.