135. löggjafarþing — 116. fundur, 2. sept. 2008.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Ögmundi Jónassyni, um að Atli Gíslason, 7. þm. Suðurk., geti ekki af persónulegum ástæðum sótt þingfundi á næstunni. Fyrsti varamaður flokksins í kjördæminu, Alma Lísa Jóhannsdóttir, tekur sæti hans á Alþingi í dag. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til þingstarfa.