143. löggjafarþing — 118. fundur, 16. maí 2014.
fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri.
392. mál
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp birtist okkur í Bjartri framtíð, að minnsta kosti á þessari stundu, sem víðtæk heimild ráðherra til íhlutunar um erlenda fjárfestingu. Við kjósum því að sitja hjá í þessari atrennu og viljum skoða málið betur milli 2. og 3. umr. Ef til vill öðlumst við sannfæringu fyrir því þá.