150. löggjafarþing — 118. fundur,  16. júní 2020.

mannabreytingar í nefndum.

[12:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta hefur borist tilkynning, dags. 15. júní 2020, um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa, þannig að Jón Þór Ólafsson mun taka sæti Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og Þórhildur Sunna verður varamaður í þeirri nefnd. Jafnframt mun Þórhildur Sunna Ævarsdóttir taka sæti Jóns Þórs Ólafssonar sem aðalmaður í atvinnuveganefnd og mun Jón Þór Ólafsson taka sæti sem varamaður í þeirri nefnd.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.