143. löggjafarþing — 118. fundur, 16. maí 2014.
varðveisla menningararfleifðar á stafrænu formi.
196. mál
Virðulegur forseti. Ég hef verið 1. flutningsmaður þessarar tillögu síðustu þrjú þing og nú er þetta fjórða þingið sem hún er komin fram. Mig langar að færa allsherjar- og menntamálanefnd þakkir fyrir að ljúka umræðunni og þingheimi fyrir að fylgja henni úr hlaði.