leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Hæstv. forseti. Eftir að hafa hlustað á úrtöluraddir, rangfærslur og fordóma hjá andstæðingum þessa máls frá því það var fyrst kynnt er ég afar glaður og stoltur af því að vera þátttakandi í að uppfylla að fullu móður alla kosningaloforða. [Hlátur í þingsal.] Og glaðastur er ég samt fyrir hönd íslenskra heimila sem í dag hafa aftur eignast von fyrir tilstuðlan Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Ég segi við þá sem hlusta: Til hamingju með daginn, Íslendingar. Ég segi já, herra forseti.