140. löggjafarþing — 120. fundur, 13. júní 2012.
lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Eftir því sem okkur skilst hefur hæstv. forsætisráðherra ákveðið að bjóða þinginu upp á sumarþing og því spyr ég: Af hverju í ósköpunum þurfum við að vera að greiða atkvæði um lengri þingfund í kvöld? Ég veit ekki betur en það standi til að þingið komi saman aftur. Er þá ekki rétt, frú forseti, að viðhafa þau vinnubrögð á þinginu að láta þingsköp standa til hátíðabrigða?