154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

störf þingsins.

[13:38]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Skilningsleysi á stöðu fólks og fyrirtækja á landsbyggðinni virðist síst vera að minnka. Nærtækt er að nefna ófullnægjandi heilbrigðisþjónustu, fullkomlega óboðlegar vegasamgöngur víða um land, óheyrilegan flutningskostnað á vörum og skerta þjónustu, svo sem á póstflutningum og í bankarekstri. Nýjasta útspilið er svo landsbyggðarskattur í formi bílastæðagjalda á flugvöllunum í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum. Það hljómar kannski eins og jafnræði að þessir þrír stóru flugvellir séu felldir undir sama hatt en það er svo sannarlega ekki staðan. Við skulum átta okkur á því, virðulegi forseti, að um flugvöllinn á Egilsstöðum fara einstaklingar til að sækja lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Það hentar kannski fólki sem er búsett nálægt flugvellinum að geyma bílinn heima og láta skutla sér á völlinn. Egilsstaðaflugvöllur þjónar hins vegar gríðarlega stóru svæði og íbúar tveggja stórra sveitarfélaga, Fjarðabyggðar og Múlaþings, telja yfir 10.000 íbúa sem mörg hver hafa um langan veg að fara til að nýta sér flugsamgöngur. Bæði þessi sveitarfélög hafa nú bókað andstöðu sína við þessa ómanneskjulegu ákvörðun. Einstaklingur sem sækir sér lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu, sem oft tekur langan tíma, þarf nú að leggja fram háar upphæðir í formi bílastæðagjalds til Isavia sem skilaði 2,1 milljarði kr. í hagnað eftir skatta árið 2023. Að lokum bendi ég á að flugfargjöld innan lands hafa hækkað um 50% frá því að Loftbrúnni var komið á.

Virðulegi forseti. Það er mál að linni.