131. löggjafarþing — 121. fundur, 4. maí 2005.
Breyting á ýmsum lögum á orkusviði.
396. mál
[00:26]
Forseti (Birgir Ármannsson):
Hv. alþingismanni til upplýsingar mun forseti meta það, eins og forsetar þurfa jafnan að gera. Hv. þingmaður ætti að þekkja af störfum sínum í öðrum forsetastóli að ekki er með vissu hægt að segja fyrir um endi umræðu af þessu tagi. Forseti fylgist með og metur hvernig umræðunni vindur fram og tekur ákvarðanir í ljósi þess.