132. löggjafarþing — 121. fundur, 3. júní 2006.
olíugjald og kílómetragjald o.fl.
794. mál
Frú forseti. Ég get lítið annað en endurtekið það sem ég sagði áðan. Þetta var gert að ósk björgunarsveitanna. Ég er hissa á að fram hafi komið víðtækari óskir um annað. Hins vegar veit ég ekki til að nokkurt ökutæki fari um þjóðvegi landsins án þess að greiða skatt í einhverju formi.