154. löggjafarþing — 122. fundur, 13. júní 2024.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þá tillögu? (Gripið fram í: Já.)
Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla um lengd þingfundar mun þá fara fram á eftir óundirbúnum fyrirspurnatíma samhliða öðrum atkvæðagreiðslum.